.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

12.8.05

Já það má segja að það ríki ekki mikil blogg-gleði hjá mér þessa dagana.
Er bara svo upptekin að gera allt það sem er svooo miklu miklivægara í lífinu.
Fattiði...hugur, heilsa og sál.
Fjölskylda og vinir og allt það....
Reyna að greina kjarnann frá hisminu. Forgangsraða!
Samt finnst mér ég einhvern veginn aldrei geta gert allt það sem ég væri til í að gera á degi hverjum...er með svo mikla dauðavitund að þetta er farið að bögga mig.
Svo stressuð að ég nái ekki að gera hitt og þetta áður en ég yfirgef þessa jörð.
Þetta hljómar kannski dáldið sækó en ég las að þetta væri fullkomlega eðlilegt.
En það verður bara að hafa það ef ég næ ekki að gera akkúrat allt...vonandi tekur eitthvað skemmtilegra við...hitti kannski ömmu og langömmu og fæ mér rabbabaragraut með rjóma :)
En svona fyrir utan það mikilvægasta í lífinu þá er allt að gerast...(reyndar alltaf þannig hjá mér)
Ég er að fara hitta GoldenGirls í kvöld.
Það verður nú eitthvað ef ég þekki stelpurnar mínar rétt.
Cosmopolitan og læti!
Stefnan er á Vegamót í mat og drykk-i ;)
Þrátt fyrir brjálað frjókornaofnæmi og vinnu á morgun læt ég engan bilbug á mér finna....
Ég mæti!
Svo hitti ég Alice Cooper annað kvöld....vííí...fékk tvo miða og litli bróðir fær því að fljóta með.
Ekki veitir kallanganum af smá make-over og makeup-tips...mehehehe....
Fyrir utan það hve magnað það verður að sjá sjóið...þá verður æðigæði að heyra aðal slagarana hans. School´s out, Billion dollar Babies og Poison...good old day´s!
Hef verið að rifja þetta allt upp síðustu daga.
Mar verður að vera með textana á hreinu.
Svo tekur mar bara slammið á etta...ekki með sítt hár fyrir ekki neitt!
Er líka auk Alice mikið að hlusta á Keane, Björk, Cynic guru, Jan Mayen, Incubus og Sonic Youth þessa dagana.
Er að fara með Ragnheiði Ösp á Sonic Youth á Nasa á þriðjudaginn.
OOOO stemming. Þau eru bara snillingar.
Fann útgáfu af Get Into the Groove með Madonnu sem þeir tóku...ógisslega fyndið!
Annars bara vinna vinna vinna...er svo vinnuglöð manneskja.
Vona að þið eigið góða helgi elskurnar.....

7 Comments:

At 11:53 f.h., ágúst 12, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Ég er að fara að hitta bekkinn í kvöld, verum í bandi elskan!

Ásdís

 
At 5:29 f.h., ágúst 13, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Sunna mín,
Við verðum saman að borða rabbabaragraut með rjóma!!!!

Kveðja,

Stína´fyrrverandi tollari

 
At 2:03 e.h., ágúst 13, 2005, Blogger sunnasweet said...

Já DísTheSkvís...við hittumst heldur betur í nótt...STEIK!
Líst vel á það Stína...fæ alveg vatn í munninn :) hehehe

 
At 5:11 e.h., ágúst 16, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Ja er sammála þér með þessa dauðavitund...maður fær svona tilfinningu af og til...og er held ég bara eðlileg eins og þú segir...það heldur manni við efnið og maður metur lífið meira fyrir vikið ;)

Luv

 
At 10:11 e.h., ágúst 17, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ, þar sem ég virðist vera félagsskíturinn í þessum saumaklúbb þá væri ég nú samt alveg til í að sjá hér smá update á því sem gerðist á föstudagskvöldið :)

Kv. Sigurbjörg

 
At 4:00 f.h., ágúst 18, 2005, Blogger sunnasweet said...

Eintóm skemmtilegheit ;)

 
At 9:19 e.h., ágúst 18, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Bjóst ekki við neinu öðru en skemmtilegheitum :)

Kv. Sigurbjörg

 

Skrifa ummæli

<< Home