Hereos are hard to find
Jamms plata vikunnar er með FLEETWOOD MAC & ber hún nafnið Hereos are hard to find, einsog titill bloggsins ber með sér.
Hlakka mjög mikið til að hlusta á hana. Hef alltaf fílað þessa hljómsveit.
Á Greatest Hits með þeim inná tölvunni & þar er sko að finna lög sem eru enn í spilun einsog Don´t stop, Go your own way, Hold me, Gypsy, Dreams, As long as you follow & uppáhaldið mitt Everywhere.
En lögin sem prýða vínylinn minn virðast ekki teljast til Greatest Hits....en það skiptir ekki rass máli, ætla sko ekkert að dæma hana út frá því.
Kem með góða umsögn um helgina....
Annars er allt æðislegt að frétta....er svo andlega stapíl & fín þessa dagana.
Kannski er það Rope Yoga námskeiðið & hugleiðslan?
Síðasta Sunnudag fór ég á Snoop Dogg með Guddy from the block & Sigurgeiri Þór.
Tónleikarnir voru bara nokkuð góðir...hann hefði alveg mátt taka fleiri lög...ég taldi eitthvað 8-9 sem er ekki neitt. Algjör motherf#####
Hann eyddi svo miklum tíma í predikun um eigið ágæti, ástina & friðinn.
ÆÆi...can´t blame him eða hvað?
Fannst ÆðiGæði að heyra Gin&Juice, Drop it like it´s hot, Beautiful & Doggy style, en fannst ekki nógu gott að heyra EKKI Let´s get blown (seint fyrirgefið!kannski næst) :(
En já...ætli næstu tónleikar verði ekki á föstudaginn...Leaves á Nasa.
Hlakka til. Finnst það hreinn unaður sem ég hef heyrt af nýju plötunni þeirra sem kemur út um miðjan ágúst, held ég.
Úfff spurning um að koma sér í háttinn...vinna á morgun og hinn..
Góða nótt elskurnar

3 Comments:
Bloggaðu nú um eitthvað sexý...
Daman
Hef ekki hitt kónginn minn lengi...ekkert sexí við það?? Eða hvað? :)
Where art thou, my dear king!
I long for your sweet words and tender touch....
Skrifa ummæli
<< Home