Miðvikudagskvöld
Í gær var fyrsta kvöld af fjórum kvöldum Airwaves.
Ég og María Rut vorum stundvíslega mættar kl. 19.30 á Nasa til að sjá Cynic guru sem að ég held dáldið uppá. Þeir voru góðir. Elska fiðlur & rokk. Bestir þegar að þeir tóku síðasta lagið Drugs. Mr. Silla kom á óvart...tók lög með Prince, En Vogue og Beyoncé sem var spes en flott.
Jara var ekki alveg að gera sig fyrir mig en flottur gítarleikur.
Ragnheiður & Raggi komu og við ákváðum að skreppa á rúntinn og fá okkur að borða.
Kíktum á Gaukinn í von um að sjá litlu sætu strákana í Nilfisk eða Búdrýgindi en misstum af þeim og ekkert spennandi í gangi.
Fengum okkur að borða á Tapas bar "bara e-ð smá" ;) hahaha .... fékk mjög svo góðan beikonvafðan túnfisk og hvítvín.
Ummm...gæti alveg hugsað mér að fara daglega.
Þegar við snerum aftur á Nasa var orðið troðfullt en við sluppum við röð og trilluðum inn í sætin sem að R&R pössuðu.
Tónlistin var voðalega ruglingsleg...ég var aldrei viss um hvort að einhver væri að spila eða hvort að þetta væri bara einhverja milli-tónlist hehe...var bara í tómu rugli/tómarúmi!
Funk Harmony Park fór því fyir ofan garð og neðan.
Hermigervill var án efa laaangbeztur í gær að mínu mati.
Skelfilega flott hjá honum...I´m totally in luv with his groovy music...
Annie (norsk) var ágæt...þarf að hlusta aðeins á diskinn hennar Anniemal.
En sæt og töff stelpa.
Hefði viljað sjá Nilfisk, Búdrýgindi, Dimmu, Diktu, I Adapt, Days of our lives, Benna Hemm Hemm og Jakobínarínu. Maður getur ekki verið alls staðar. Bömmer!
Vildi að ég gæti færst á milli staða með einhverri orku, svona einsog í Charmed.
En kvöldið í kvöld er ekki síður spennandi. Onei verður bara betra og betra...
Ég ætla m.a. að sjá Bryndísi, Dýrðina, Telepathetics, Daníel Ágúst og Junior Senior.
Sé ekki fram á að geta séð Skakkamanage né José Gonzales :(
Bæ í bili

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home