.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

19.9.05

We had joy, we had fun, we had seasons in the sun....

Ummm...eða kannski ekki svo mikil sól þessa helgina einsog fyrirsögnin gefur til kynna en samt svona smá glætur, sérstaklega á hátíðlegum Sunnu-degi.
Var bara að hlusta á þetta lag (í nýrri og gamalli útgáfu sem að allir þekkja) og fannst bara fyndið að skrifa þetta sem titil bloggsins...því oftast þykir mér auðvelt að blogga en einstaklega erfitt eitthvað að finna hausinn á sjálfan textann.
Hef sleppt að publish-a nær fullskrifuðum bloggum sem ég gat bara engan veginn skýrt. Jahérna, skrýtin stelpa.

Í dag er kalt...tvær gráður...sem er ekkert svo slæmt ef maður á húfu, trefil og vettlinga.
Sem að ég á fullt af :)
Held að ég hafi orðið úti í fyrra lífi.
Alveg lógískt ef miðað er við þá vettlinga&húfu áráttu hjá mér alltaf hreint.
Mér finnst haustið alveg æðislegt. Litir laufanna sem falla eru magnaðir.
Gott að fara í göngutúr á köldu og stjörnubjörtu kvöldi.
Ægisíðan er vinsæl hjá mér.
Elska líka að kveikja á kertum í dimmunni sem verður meiri og meiri. Alveg kósí!
Planið er að skella sér í berjamó og smá sveppatínslu áður en allt frystir....hverjir eru með?

Bókmenntahátíð Reykjavíkur var alla síðastliðna viku á Iðnó og ég auðvitað að vinna þar fimm kvöld í röð sem var alveg fínt en líka alveg feiki nóg.
Hitti auðvitað fullt af frægum rithöfundum, einsog Margaret Atwood, Hanne-Vibeke Holst, Nick Hornby, Paul Auster, Annie Proulx, Einar Má, Einar Kára og Vilborgu Dagbjarts.
Menningin var alveg allsráðandi. Heh!

En þessi helgin leið ljúflega einsog aðrar.
Örlítið af þessu og hinu, s.s. djamm & drykkja á föstudaginn, fótboltaleikur & grill á laugardaginn & svo leikhús á Sunnudeginum. Endurheimti Guddy frá NY. Húffípúfff....
Þess á milli las ég um félagsleg vandamál og hafði það gott í foreldrahúsum.

Í gær varð afi minn sjötugur og við stórfjölskyldan söfnuðumst í kaffi & kökur hjá þeim gömlu. Afi lítur alls ekki út fyrir að vera sjötugur...hann er einsog módelin í Dressmann auglýsingunum...nema hann er klæddur í Armani og aðra slíka merkjavöru...algjör töffari.
Amma gaf mér ruslapoka sem lykta af Lavender (aha allt er nú til)...og það er allt angandi hjá mér.
Eins róandi og þessi lykt á að vera þá er ég bara ekki alveg að gúddera hana....vill frekar vanillu og mulberry svona dags daglega.

Er bara skólast og reyna að komast í almennilegan haustgír...
Njótið haustsólarinnarog takið lýsi

5 Comments:

At 2:34 e.h., september 21, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Uff púff..veit ekkert hvað maður á í svona dæmi en...þetta er bara flott síða og sammæal með haustið ehe :S:D kv þórís litla frænka

 
At 2:39 e.h., september 21, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Uff púff..veit ekkert hvað maður á í svona dæmi en...þetta er bara flott síða og sammæal með haustið ehe :S:D
kv þórís litla frænka

 
At 10:57 e.h., september 21, 2005, Blogger sunnasweet said...

Takkítakk :)

 
At 1:13 f.h., september 22, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Blessuð...og til lukku með gamla;)...en ég er svo sammála þér með Ægisíðuna, kertin, kósýheitin og laufin/litina :-)

kisskiss

 
At 1:36 f.h., september 25, 2005, Blogger sunnasweet said...

GusGus í kvöld á Nasa!!

 

Skrifa ummæli

<< Home