Klukkuð!
Var að tala við Mrs. Royal á msn áðan.
Hún segir ,, þú ert klukkuð" og ég alveg bara vóó hva meinaru??
Er ég klikkuð.....? Ég ekki skilja þig??
Þetta var nebbla alveg útúr kú í samtalinu.
Vorum að tala um lagið heart of gold með Neil Young. Heh...
Hún segir mér þá að kíkja á bloggið sitt og fá nánari útskýringar.
Okei...þetta er nýjasta blogg-trendið...að klukka fólk og þá á sá sem klukkaður er að skrifa fimm "useless" hluti um sjálfan sig og klukka fimm aðra.
Minnir á e-n leik í gamla daga...dáldið barnalegt en skemmtilegt!
1. Ég tek lýsi, helst á fastandi maga á morgnana, því annars fæ ég verki í eyrun.
2. Fyrsti sterki kaffibollinn er sem fullnæging...eða svona næstum því.
3. Finnst gott að vakna á skikkanlegum tíma, teygja mig í græjurnar og kveikja á Xfm 91,9 og hlusta á Búa og Freysa bulla í morgunþættinum Capone. Get hlegið endalaust að þeim.
4. Er hrifin af öllu sem er silfrað og gyllt, já og fjólublátt auðvitað.
5. Elska að drekka rauðvín, borða osta og hlusta á Jeff Buckley.
Ég klukka Ásdísi, Elísu, Margréti, Ragnheiði Ösp og Ragnhildi Ósk.

5 Comments:
Prófaðu líka að hlusta á jeff b. á morgnana þegar þú ert að vakna,,,, það er líka mjög gott kaffi.
Ufff klukk my ass!!! Eg er gjorsamlega hugmyndasnaud
Disa
Kommon DísTheSkvís...ég gæti skrifað 100 tilgangslausa hluti án þess að hugsa mig um...heh!
Mòdgun ì gangi...fylgist sko alveg med blogginu thìnu :=)....hahaha....Thù ert sætust..!! Tharf ad fara ad hringja ì thig soon....
knÙs knùs Oslobumba
ég móðgast ekki svo auðveldlega elskan....en mér fannst þetta bara dáldið skondið!
Já hringdu endilega...er reyndar ekki með heimasíma eins og er...en ma og pa eru að fara til Turkey og ég verð heima með skæruliðunum...þannig gamli góði heimasíminn verður vikur þá..læt þig vita...kozz&knúz
Skrifa ummæli
<< Home