ICELAND AIRWAVES ´05
Ég er að hlusta á Peaches, ryksuga, þvo þvott og vaska upp. Svakalega aktíf eitthvað. Líður svo vel þegar ég er með allt hreint.
Þetta er nú samt bara rólegheitahelgi hjá mér. Vinna og aftur vinna. Ekkert djamm :(
Tók svo vel á því síðustu helgi að ég hef ekki samvisku í annað, þá líka sérstaklega í ljósi þess að Iceland Airwaves er á næsta leyti. Já ég splæsti í armband sem kostaði ekki nema skitin 6000 kjell. Ekki mikið fyrir allt það sem er í boði. Hlakka vangefið til. Ég Ragnheiður og Raggi þurfum að hittast og plana kvöldin. Búa til dagskrá.
Þau helstu bönd sem að ég ætla að reyna að sjá eru GusGus (sá þá reyndar á Nasa um daginn en fokkit voru svo góðir verð að sjá þá aftur....elska rassinn á Stebba Steph) The Zutons, Juliette & The Licks, Junior Senior, Annie, Daníel Ágúst, Ghostigital, Bang Gang, Ensími, Au revoir Simone, Dr. Spock, Hermigervill, Jagúar, Jeff who?, Kimono, Lights on the highway, Cynic Guru, Dikta, Donna Mess, Nortón, I Adapt, Númer Núll, The telepathetics, Dimma, Sign, Dr. Mister & Mr. Handsome, Ókind, The Viking Giant Show, Singapore Sling, Mínus, Jan Mayen, Ratatat, Jakobínarína, Vonbrigði og Vínyl. Þetta er svona það helsta held ég, líka sko af því sem ég þekki eitthvað og hef hlustað á. Þarna eru örugglega fullt af öðrum áhugaverðum hljómsveitum sem ég verð að tékka á líka. Þetta eru aðallega íslensk bönd og bara brotabrot. Úff þetta er töff. Maður verður einsog þeytipíka á milli staða. Eða jafnvel bara spurning um að velja einn stað hvert kvöld og halda sig þar nema það sé algjör horror...spurning! Check it out
Það versta við svona vinnuhelgar er að ég læri lítið sem ekkert. Finnst ég ekki getað lært og unnið á fullu. Halló þarf smá breik. En vandamálið núna er að ég þarf virkilega að fara að læra....en hef ekki tíma. Usss...hvar er skipulagshæfnin þegar ég þarf á henni að halda.
Svo á ég svo hrikalega erfitt með að velja úr. Langar að gera allt og vera alls staðar.
En jæja ætla að klára að brjóta saman þvott og hoppa í sturtu....vinnan kallar.....
Hafið það gott....
P.S. Hverjum öðrum en mér finnst Mekong auglýsingarnar alveg steiktar....e-ð svo David Lynch legar :)

4 Comments:
Sunna dìs hvar er skipulagshæfnin thìn.....rule number one...SKOLINN GENGUR FYRIR :) haha....
Osloknus
Úúú góða skemmtun á Airwaves, væri alveg til í að fara á góða tónleika núna....
Ásdís
Já ég líka...sjæt!
Það verður glimmer geggjað!!
Hvenær eigum við að hittast og plana??
En einmitt eins mikil steik og auglýsingin hjá Mekong er, er hún bara ekki alveg að gera sig...allavega ekki fyrir mig...kannski aðra?
Maður tekur samt eftir henni..hehe
Sko ég veit ekkert hver þessi Lynch er en mér finnst Mekong auglýsingarnar hundleiðinlegar og hallærislegar, en sammála tek samt eftir þeim og læt þær fara í taugarnar á mér þegar ég sé þær :)
En takk fyrir síðast, alltaf gaman að hittast.
Kv. Sigurbjörg
Skrifa ummæli
<< Home