Laugardagskvöldið
gat svo klikkað á endanum....typpikal!
Mættum á Austurvöll 21.30 til að fara inn á Nasa..en nei þá var röð að Alþingishúsinu sem að gekk varla neitt.
Eftir nokkra bjóra, kaffi, tvo og hálfan tíma í röðinni sem var bara hálfnuð vorum við komin með harðnaðan hor út á kinn og gáfumst upp þar sem að við sáum ekki fram á að ná neinni dagskrá nema kannski skottinu á GusGus...töltum yfir á Gaukinn.
Sem betur fer var bara tíu mínútna röð þar annars hefði ég bilast...þið viljið ekki hitta mig íssskalda eftir 2 1/2 í röð. Össss...
Þar sáum við Ensími sem stóðu sig ógisslega vel.
Djöfull var flott þegar að þeir tóku slow return....ooo ég elska þá, sérstaklega KGB.
Hittum Ragnheiði, Ragga og Njalla. Við barinn auðvitað ;)
Horfðum á International Noise Conspiracy sem voru skítsæmilegir.
Ekkert rosalega grípandi rokk. Fórum áður en yfir lauk.
Kaffibarinn bjargaði kvöldinu...þar hitti ég fullt af skemmtilegu fólki.
Sem er alltaf gaman :)
Annars er ég ekki ánægð með Iceland Airwaves í ár...skipuleggja þarf miklu betur ef ég á að kaupa mér armband aftur að ári liðnu.
Raggi hennar Ragnheiðar gerði nýtt lógó fyrir hátíðina....ICELAND WAITINLINES ´05 MUHAHAHA algjör snilld!
Annars eru Guddy og Palli nýjasta parið í 101....voru alltaf í sleik.
Tótal hottness í gangi :)
KVENNAFRÍDAGURINN, mánudagur 24. okt.
Ég varð meyr á að sjá allann fjöldann í bænum á mánudaginn. Þetta var alveg magnað.
Ég vill þakka mömmu, ömmu og öðrum kynsystrum mínum sem rutt hafa brautina á þessum 30 árum kærlega fyrir og að sjálfsögðu mun ég leggja lið við jafnréttisbaráttuna í framtíðinni.
Því þótt að margt hafi áunnist er svo margt sem vantar enn þá upp á.
Ég er súperstolt af því að vera kona....elska það!
En er ekki með því að segja að konur séu betri en karlar. Alls ekki!
Konur eru ekki að reyna að rúlla yfir karlmennina í þjóðfélaginu...við viljum standa jafnfætis og stjórna með þeim.
Ég vona að ég og mínar vinkonur lifi þau tímamót þegar að kynjalaunamisrétti er ekki til staðar á Íslandi og ekki þarf að halda sérstakan kvennafrídag.
Áfram stelpur!!

7 Comments:
Nei það er alrangt Raggie...ég og Mæsa fórum aldrei á barinn...hehehe..
Tak ligemode skat...*smús*
Hæbb.. langaði bara segjað hæ .. bæ
Já sætt af þér :) hver sem þú ert?
HæBæ.
Mer heyrist thessi kvennafridagur hafa verid algjor success! Vildi ad eg hefdi getad tekid thatt, er anaegd med endurvakningu islenskra kvenna hvad jafnrettismal vardar... Verdum ad vera vakandi yfir thessu ollu saman!
Annars er thad i frettum Sunna Dis Svakaskvis ad eg elska thig og sakna thin ogurlega mikid og get ekki bedid eftir ad sja thig um jolin! Svo eru lika frettir ad eg er ad fara a Franz Ferdinand naesta fostudag!!! Jibbiii!!!
Baejo,
Asdis
Fokk jú...oo mig langar :(
Sé eftir að hafa ekki farið á þá í september í höllinni.
En White Stripes eru hérna 20. nóv. Glimmer geggjað!
Hefði verið gaman að fara saman :)
Sakna þín líka ógurlega mikið og hugga mig við það hve tíminn líður og senn koma jól sem þýðir að þú kemur...ca ne fait pas longtemps!
Vraiment pas! Gros Bisous
af hverju ertu svona mikil sameinuðu þjóða áhugamanneskja? aldrei vitað þannig stelpu...
Hef mikinn áhuga á SÞ.
Áhugaverð og sérstök "stofnun".
Samt svona love/hate relationsship...
En annars er ég mjöög spes stelpa og hef áhuga á öllum fjandanum...
Hvað vekur áhuga þinn?
Skrifa ummæli
<< Home