Fimmtudagskvöldið
Gærkvöldið var fínt. Byrjuðum á að sjá Bryndísi á Nasa. Hún var dáldið svona soul/funk týpan...með virkilega góða rödd...minnti smá á mömmu sína, Ragnhildi Gísla. Tjilluð tónlist sem minnir á ææi man ekki hvað hún heitir...já Fiona Apple eða nei Erykah Badu ætlaði ég að segja.
Svona sweet!
Fórum á Grænan Kost að borða og vá hvað við fengum góðan mat...nammm...
Svo sáum við Mike Pollock í augnablik á Grandrokk. All American!
The Telepathetics áttu hug minn allann....sjæt!! hvað það var sætur gaur á gítar og söng alveg eins og engill. Namm...pant eiga hann!
En allavegana voru þeir drengir þrusugóðir...skemmtilegir!
Fórum á Nasa og sáum Daníel Ágúst...jú tónlistin var nokkuð fín...svona róleg strengja- og raftónlist...hljóðfæraleikurinn allsráðandi sem er flott.
Það sem truflaði mig mest var að Daníel var klæddur einsog franskur aðalsmaður frá 15. öld dansandi´asnalegan nútímadans, ég var hálf hlægjandi allann tímann.
Aðeins of útúrpældur þarna fyrir minn smekk.
En hlakka samt til að hlusta á nýju plötuna hans, Swallowed A Star, án þess að þurfa að horfa á hann dansa einsog hirðfíbbl (fífl) hehehe...
En já svo tók við danska sveitin Epo 555 sem voru lala bara...blanda af þýsku tölvu-popp-rokki. Powersolo (danskir) voru með gott rokk...minntu einna helst á rússneska sveitakalla.
Flott hljóð og smellir og takturinn hélt manni vakandi.
Junior Senior voru síðust...hef alltaf fundist þau of jollígollí fyrir minn smekk en engu að síður ágætis band. Þau voru í fanta góðu formi í gær...lýðurinn trylltist hreinlega, enda mikil stuð tónlist...mikið úúúúú...aaaaaa og solleis sykurmolastöffi sem er gebba flott.
Íslenka gellan í sveitinni var ummm já hvað skal segja aðeins of spennt yfir þessu öllu saman eða bara full kannski. Hah!
Æðislegt að sjá þau "live". Þarf að fylgjast með þeim in da fjútúr.
Við stöllur vorum spakar í gær en stefnum á e-ð brjálað í kvöld og annað kvöld.
Sjáum hvernig fer....ætli ég komi ekki með smá öppdeit á morgun ef að heilsan leyfir :)
Annars er ég búin að kaupa mér miða á Sigurrós 27. nóv....langar að sjá sjóið.
Í mínum eyrum er þetta ekta svona tónleika-tónlist sem þeir spila...svona dúllulegt og seiðmagnað í senn.
Hlusta vanalega á tónlist með meira fútti í. Rokk og ról jafnvel.
En já hafa sig til....alltof mikið í boði í kvöld.
Hafið það gott

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home