.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

22.10.05

Friday

Var svo lengi að hafa mig til í gærkvöldi að við Mæsa vorum heldur seinar á Nasa...þegar við loksins komum um hálf ellefu var röð alla leið að símahúsinu sem gekk þó á ekki nema svona hálftíma. Alveg nóg samt í frostinu.
Sáum það að við yrðum að velja stað og vera þar...mar nennir ekki að flakka á milli staða og standa svo meirihlutann af kvöldinu í röð (sem við reyndar enduðum með að gera)
Þannig að Nasa var pleisið.
Au Revoir Simone (US) voru að spila þegar að við komum inn. Þær náðu ekki athygli minni.
Kannski var mér bara kalt :)
Breskur gaur sem kallar sig Metronomy var næstur og fannst mér hann dáldið góður.
Hann var algjör snúður með krullur.
Næst á svið voru unglingar frá Svíþjóð sem kalla sig Lo-Fi-Fnk...pínu prodigy fílingur í bland við rokk hjá þeim. Spurning hvort að þau hafi haft aldur til að vera á hátíðinni...hehe 18 ára aldurstakmark sko.
Architechture in Helsinki eru áströlsk og minntu mig til að byrja með á Lúðrasveit. Ég fíla ekki lúðrasveitatónlist (minnir mig á þynnkudag í Basel, Sviss í sumar með Palla og lúðrasveitir þrömmuðu um allar götur) Það skánaði en þau náðu ekki eyrum mínum...ég var náttúrulega ekkert búin að hlusta á þau en mér fannst þau alls ekki eins góð og látið var.
Þvílíkt búið að hæpa þau upp. Sem er hundfúlt því að svo voru Hjálmar bara svona lalala...Siggi söng en það vantaði aðal söngvarann sem ég skil ekki og við nenntum ekkert að hanga þarna óreyktar.
Hefði svo miklu frekar viljað vera í Hafnarhúsinu og sjá Dr. Spock og Juliette & The Licks.
Ja eða bara á Gauknum og sjá Kimono, Ghostigital, Mitchell Brothers og Fiery Furnaces.
En svona er þetta, maður velur og getur ekki alltaf vitað hvað er bezt.
Kíktum í einn drykk á Ölstofuna. Hún var of slómó...okkur langaði í stuð.
Eyddum tveimur tímum í röð á Kaffibarinn og Sirkus....þrátt fyrir friðarhanskana mína fínu og flottu var ekki mikill friður í mér...djö#### bull.
Þetta var því frekar misheppnað allt saman.
Þetta eru samt rooosa góðar fréttir!
Síðasta kvöld íslensku loftbylgjunnar í kvöld og við stólum á dagskránna á Nasa...þar eru m.a. Bang Gang, Zoot Woman (UK), Clap Your Hands Say Yeah (US), Ratatat (US) og at last but not least GUSGUS...getur ekki klikkað!

4 Comments:

At 1:20 e.h., október 23, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Thù ert algjør menningarpjalla :)...menninarpjallan min:)

Fardu nu ad senda mer sms svo eg geti bjallad à tig :)

knus,bumbulina

 
At 3:43 f.h., október 25, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Váá, finnst eins og ég hafi verið á Airwaves, fínt að fá svona öppdeit því að mér finnst alltaf leiðinlegt að missa af þessu! Systur minni fannst Architechture in Helsinki alveg frábær, misjafn smekkur! Knús frá NefJork

 
At 9:30 e.h., október 25, 2005, Blogger sunnasweet said...

Já, veistu þú þarft ekki að sjá eftir hátíðinni í ár...ekki alveg nógu vel skipulögð...stóð dágóðan tíma í röð á laugardagskvöld, án þess að komast einu sinni inn..alveg brjáluð! :( en þó ágætis bönd sem ég sá....
Hvað er að frétta frá NefJork??
Fékkstu afmælis-emailið?

 
At 6:25 e.h., október 30, 2005, Anonymous Nafnlaus said...

Allt gott að frétta af Nefjork, læri læri læri, ekki mikið stuð. Takk fyrir afmælis e-mailið!

 

Skrifa ummæli

<< Home