Reality Check
Enn að hlaða batteríin eftir helgina og öll að koma til.
Íbúðin að komast í sitt fyrra horf. Hún var skelfing.
Föt útum allt og brjálað uppvask.
Törnin byrjaði á föstudaginn þegar að Palli, þessi elska skutlaði mér til Keflavíkur.
Ég fór á bílnum hennar Maríu Rutar uppá flugvöll að sækja Jesse og Christopher.
Tveir artí dúddar frá NYC sem komu til þess að kynna okkur (nokkrum æðislegum krökkum) fyrir YellowArrow.
Nokkurs konar landfræðilegt blogg.
Hvet ykkur til að kíkja á síðuna og skoða what´s it all about
Munda, Skúli og Sólrún, kannist þið e-ð við þetta?
Stefnan er að starta þessu í vor hérna á Íslandi.
Mjög spennandi.
Þegar við komum í bæinn fórum við í snarl á Kaffi Babalú sem að er nýlegt kósí kaffihús á Skólavörðustígnum og mjög svo sympatískur drengur að vinna þar ;)
Kaffið var lala.
Gamla góða Vesturbæjarlaugin var heimsótt.
Það var himneskt.
Þeir í USA eru með frekar sjeikí almenningslaugar og gaurarnir því alveg að fíla heitu pottanna og gufuna.
Maru í Aðalstrætinu varð fyrir valinu sem dinnerpleis.
Ég var sushi virgin, en er það ekki lengur. Vííí hihííí
Ég var heppin að hafa pró sushi fólk mér við hlið.
Gaman að læra almennileg handtök.
Þrátt fyrir að hafa aldrei verið mikil hrísgrjónamanneskja og hvað þá sojasósu þá fannst mér þetta áhugavert og verð að prófa aftur.
Röltum á 1919 bar eða hvað hann heitir, gæti líka heitið Salt fyrir mér.
Þar voru flottar listaspírur. Rauðvínið var bezt.
Kaffibarinn var svo ekki að gera það fyrir mig þetta kvöld.
Hvort að það var slappelsi eftir pottasetu eða bara plein þreyta veit ég ekki.
Mjög át off karakter að fara úr 101 um þrjúleytið.
Vanalega á leiðinni þangað um þetta leyti.
Keyrði til Kef-by í grenjandi rigningu og rotaðist í tölvuherberginu hans pabba.
Fundur YellowArrow var á Iðnó á laugardaginn.
Vorum í rauninni dáldið að kynnast bara sem hópur.
Flest allt krakkar úr KaosPilot, nema ég og Heba.
Þurfti að beila áður en hann kláraðist og brunaði svo í þriðja fokking skiptið til Kef city í matarboð hjá föðurfjölskyldunni.
Það var rosa jólalegt og afslappandi. Æðigæði matur!
Var alveg geispandi á fullu og dáldið dónaleg þegar ég æddi út eftir köku og kaffi og sagðist vera að drífa mig á djammið.
It´s family...þau fyrirgefa svona.
PartyZone á Rás 2 kom mér í gírinn á Reykjanesbrautinni.
Ég hitti Guddy og Lizzy og drakk mig fína á met-tíma.
Tókum fótósjútt sem aldrei fyrr :) verí djúsí!
Fórum á Sirkus til að hitta liðið. Hittum Jack og Meg White.
Elti stelpurnar á KB. Unaðsheimur ungra stúlkna.
En var ekki lengi að hverfa aftur á Sirkus þegar að kyssukonan fór á stjá.
Einhverjir Indverjar voru að elska mig og vildu flytja mig til Bombay.
Ekki sjéns. Ég tók bara Sylvíu Nótt á þá.
Hélt að skilaboðin væru skýr en nei þeim fannst það náttúrulega bara rosa fyndið mahaha...sveitt!
Var annars í mikill tengsla-neta-myndun þarna við hana "Heiðu" Jóns og Kónginn.
Morgunmatur á PizzaPronto.
Eftir þriggja tíma svefn dröslaðist ég með sama meiköppið á Óliver í bröns.
Kvöddum strákana.
María fór með þá í Bláa Lónið fyrir flugið. Dugleg stelpa.
Ég fór í börteipartí til ömmu og afa. Fór samt í sturtu áður.
Ég neyddi þau til að hlusta á þátt Dr. Gunna á xfm á meðan ég og amma gerðum allt reddí.
Afi var ekki hrifinn en þagði þegar ég gaf honum flatkökur með hangikjeti.
Amma sagði honum að fara inn og leggja sig...þetta væri nú stelpuboð ;)
Ég fæ mínu fram :) einsog amma.
Missti af Popppunkti afþví ég fór á White Stripes með Guddy og Mrs. Royal.
Sem er samt mjööög góð afsökun.
Jakobínarína var góð.
Finnst Gunni söngvari algjör músarlingur (jákvætt) þekkti hann sem krakka og hefur greinilega næstum ekkert breyst. Eða svona jú kannski eitthvað en samt alveg sama krúsídúllan.
En allavega fannst mér strákarnir standast allar væntingar og gott betur.
Gaman að fylgjast með framhaldi þessarar hafnfirsku sveitar.
The gruesome twosome stóðust allar mínar væntingar þrátt fyrir einhver smá tæknileg vandræði.
Þau voru rosalega flott þarna tvö á sviðinu.
Jack er með þessa líka sexí rödd að hún kemur manni til toute de suite.
Hefði viljað heyra Meg syngja ,,In the cold, cold night" sem mér finnst svo ofur svalt og Jack ,,Fell in love with a girl".
Aha þá hefðu þau algjörlega brætt mig.
Finnst þessir tónleikar slá Sonic Youth út. Eða hvað?
Ætla að hugsa það aðeins betur.
Í kvöld voru spennandi tónleikar á Nasa.
Ampop sem að eru góðir og Worm is green sem að ég hef enga skoðun á.
Fór ekki.
Ætla að kaupa mér plötu í staðinn.
Planið er að fara og sjá Nórton og Hermigervil á Stúdentakjallarann á laugardaginn.
Þeas ef við Senjoritan verðum ekki of hressar á því af cosmosvambli.
Þangað til...ritgerðir og verkefni...vinna og vær svefn.
Góða nótt..

4 Comments:
Ja það hefur s.s. ekkert verið að gera hjá þér seinustu helgi !!! bara hangs og kósýheit ;)
Spurning hvernig komandi helgi endar ?? spennó...
Jaher elsku Sunna min! Thad er ekkert verid ad taka thvi neitt rolega thessa dagana!
Asdis
Fólk er að dreyma þig út um allan bæ elskan og birtir það á bloggsíðum....
Kveðja,
Daman
Skil ekki alveg út á hvað Yellow Arrow gengur en þetta eru kúl myndir. Mér finnst að þú eigir alvarlega að spá í að fara í einhvers konar production nám, þú ert svo mikill tónlistarunnandi.
Skrifa ummæli
<< Home