Þrettándinn
Í nótt dreymdi mig að ég væri með þremur módelum í New York.
Þær áttu að meta mig hátt og lágt, hvað ég segði, gerði og borðaði :) hahaha
Áttu semsagt að segja til um það hvort að ég hefði "potential as a model" YeaH!!
Ég var ekki ánægð með þetta því að ég vildi verða fyrsta alvöru formúlu 1 kappaksturskonan í heiminum, svo ég gerði allt sem að í mínu valdi stóð að þær myndu gefa mér falleinkun.
Borðaði eins og svínka (á meðan að þær borðuðu sama sem ekki neitt), hló asnalega (einsog hross þeas), klæddi mig ógeðslega hallærislega (magabolur og læti) og talaði eins og Vicky í Little Britain...Lekkert!
Þær voru alveg að fíla þetta allt saman og ég bara sjííí hvað þær eru klikkaðar þessar helvítis kóksniffandi hórur.... og var allt í einu farin að flýja undan þeim...fór útum allann bæ og hitti þ.á.m. Fantastic Four og Beastie Boys :) aha algjör steik þessi haus minn...samt feendið
Vaknaði áður en að niðurstaða fékkst. Líklega neikvæð :)
Þetta er pottþétt afleiðing þess að ég horfði á ANTM í gærkveldi.
Sleppi því næst.
Annars er ég hardly working hérna í vinnunni minni, svona um hánótt.
Svona dauður tími og ég bara multi-tasking.
Tala í síma, pikka á tölvuna, naglalakka mig, horfa á sjónvarpið, setja á mig myntufótakrem og sjá um að allt sé í lagi :)
Ætla að sofa í sex tíma á eftir og skella mér svo í kaffiboð til Reigen.
Rósa, gömul bekkjarsystir mín mun líka mæta...ég ætla að hræra í eina franska handa þeim og svo verður þarna fullt af ostum og öðru gúmmelaði...ummm en hvað það verður ljúft.
Svo er það sannkölluð þrettándagleði í kvöld...við frændsystkinin munum fara á kostum, hvort sem það er við matseld, drykkju eða leik...vúhúúú!
Hafið það gott

5 Comments:
Hahhaa steiktur draumur!
Ásdís
Hahahha þú ert svo fyndin,í undirmeðvitundinni lagnar þig ýkt að vera americas next top model :-) love you,Múslimakonan :-)
nú já er verið að maka á sig amerísku myntufótakremi?;) hvernig var það svo?
ps. takk fyrir yndislega heimsókn á fös. Höfum þær fleiri svona þegar ég flyt heim!:)
aha endilega, góður matur, sund- og gönguferðir og eintóm notalegheit :) all when you move to the neighbourhood.
En já ammrísska myntu-fótakremið er bara nokkuð gott...betra en eplasíder-handáburðurinn :)
Vá skemmtilegur draumur kona :)
Skrifa ummæli
<< Home