Gleðilegt nýtt ár
Mér finnst það alls ekki rökrétt að refsa fyrir morð með morði (aftöku)
Ekki fyrir viðkvæma!
Við mannfólkið erum svo miklar steikur! Og ég þoli það ekki....
Þetta líf hérna á jörðinni gæti verið svo miklu betra og fallegra
En þrátt fyrir allt er ég ágætlega hress hérna í vinnunni á nýársdagsmorgun...róóólegt og þægilegt.
Þynnka gærdagsins geymd en ekki næstum því gleymd :(
Skaupið var skemmtilegt.
Finn það á mér að 2007 verði frábært ár...alveg hreint magnað!

7 Comments:
Ég er alveg sammála þér. Ég er á móti dauðarefsingum í öllum tilvikum. Finnst alveg ömurlegt að Saddam hafi verið tekinn af lífi sama hversu ógeðslegur hann var og hversu margt misjafnt hann hefur á samviskunni...
En gleðilegt ár enn og aftur elsku snúðurinn minn og ég finn það líka á mér að 2007 verði frábært og magnað ár...
Knús,
Ásdís
Já ég tek undir með síðasta ræðumanni.þú skalt ekki mann deyða.En þetta verður frábært ár,mikið grín,mikið gaman :-)Guðrún, aka gin og tonic (æl æl æl)
já alveg hreint ömurlegt...þrátt fyrir að maður sé sammála að hann hafi átt þetta skilið þannig lagað séð, þá erum við bara engu betri ef ætlum að refsa í sömu mynt.
Sé svo eftir að hafa horft á myndbandið á netinu...þetta var einsog eitthvað djók...hvernig gat það átt sér stað að þetta væri tekið upp og aftakan framkvæmd af að mér sýndist einhverjum mohammed og abdullah úti í bæ...þetta var svona einsog eitthver street-execution þar sem að engin lágmarks mannréttindi voru viðhöfð...er þetta ekki samfélagið sem að átti að bjarga og koma til betri lýðræðishátta??
ææi ég vona bara að Bush og hans líkar sofi rótt...eða ekki.
já og mikið gin mikið gaman á þessu ári :)
já ég er sammála þér í þessu - algjörlega á móti dauðarefsingum.....að mínu mati hefði það verið mun meiri refsing að láta hann bara sitja í fangelsi til æviloka.
Annars óska ég þér gleðilegs árs og vonandi munum við eiga fleiri samveru stundir á nýju ári :) Tökum kaffihúsin með stæl
kveðja
Kristín María
"leave him hanging"
en kannski ekki alveg að taka það bókstaflega...
en annars bítíbít... nartinart...
you just taste so gooooood sweety!!!
gleðilegt ár músla og þakka bitastæðar stundir...
hugzkí
bwahahaha "bitastæðar" :)
þú ert alveg met mín kæra
Skrifa ummæli
<< Home