.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

15.11.06

Erlendir verkamenn

Áðan tók ég lyftuna uppá 3. hæð til að ná mér í álegg á hrökkkexið í mötuneytið...já ég veit...ég á að taka stigann...geri það eiginlega alltaf nema í dag.
Var í smá fótaaðgerð í gær...og er dáldið bólgin, svo ussss...ekkert bögggg!
En aftur að lyftuferðinni...ég kem inn og þá eru tvær erlendir verkamenn þar fyrir.
Svona voru samskiptin:
Ég: Góðan daginn! (brosi sætt en lítt, svo það gefi nú örugglega ekki meira en almennilegheit til kynna)
Þeir: Hæ hæ góðan daginn....(brosa sínu blíðasta)
Annar þeirra: Mjööög kalt úti í dag...og bendir eitthvað út í loftið.
Ég: úúúú já alveg ógeðslega kalt...og brosi svona vorkunnarbrosi.
Eruði að vinna úti í dag? (set upp hvolpasvipslúkkið)
Þeir báðir: Neei...inni! (voða glaðir)
Svo erum við á 2. hæð og þeir segja kurteislega bless og ég kveð þessa kumpánlegu útlendinga.
Var eitthvað svo ánægð með þetta ...vildi bara deila þessu með ykkur :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home