.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

26.9.06

Fersk tónlist á PoppTíví

Longface myndband þeirra Minusa er án efa eitt drullu flottasta íslenska myndband ever made...mín skoðun að sjálfsögðu ummmmm...sá það áðan alveg ferskt á Popptíví
líka eitt sem að ég hef ekki séð lengi...Das Model með "íslandsvinunum" í Kraftawerki.
Má líka ekki gleyma Sexy Back með JT...alveg skelfilega grípandi.
Allt voða ferkst eitthvað, rétt eins og ég.

Get sagt með sönnu að síðasta helgi hafi verið nýtt til fullnustu í allt annað en vinnu :) Það var líka bara tímabært og alveg yndinslegt.
Eða jú djóóók, tók stutt 4 tíma vinnuverkefni...svo lítið að ég mundi varla eftir því :)
Var voða mikið í því að sofa út þangað til ég vaknaði að sálfsdáðum...var yfirleitt að vakna svona um tíu ellefuleytið, sem er kannski dáldið seint öllu jöfnu en þegar að svefninn er að skornum skammti í langann tíma og maður vinnu dagvaktir og næturvaktir til skiptis er það bara hollt og gott.
Fór með Egil Darra á Gretti 2 sem var voða krúttaraleg...þoli yfirhöfuð ekki ketti en Grettir sleppur..hann er svo feitur og með svoo sæt augu.
Fór í fyrsta skipti með bílinn í smurningu...
Fór á djamm með Guddy og Ragga...orðin afskaplega þreytt á þessu í bili...AFSAKIÐ HLÉ fram að Airwaves.
Fór á Perluna að borða...maturinn var í lagi, þjónustan súper.
Útsýnið var betra en á Grillinu í fallegu veðri...mæli með þessu fyrir þá sem hafa bara fengið sér ísinn.

Áðan skottaðist ég niður á tjörn og naut þess er ljósin voru slökkt í smátíma. Tjörnin varð e-ð svo mistísk...sá fyrir mér lagarfljótsskrímslið koma upp úr dvala...en það gerðist ekki...en endurnar voru aftur á móti alveg kreisí...byrjuðu að ráðast á fólk og hávaðinn varð óbærilegur...muhahaha nei ég er að grínast...með nettan svefngalsa hérna í vinnunni eftir engan svefn einsog oft áður....
Note to self: ekki vera svona spör á svefninn!
Reyndar voru mörg ljós í nærliggjandi húsum, hótelum og ráðhúsi sem að kannski voru ekki mikið að hjálpa til að gera almyrkva en þetta var rómó með kertum og alles.
Voða mikið af pörum í leit að stjörnum en fengu bara ský...gott á þau.
Gat svo dottið í smá rauðvín og spjall á Iðnó...
Kom svo heim, tók til í eldhúsinu og kjaftaði við Ástu þangað til ég þurfti að fara í sturtu fyrir vinnu...faaallega hvað ég get stundum malað og malað og ekki hætt.
Svo suma daga er ég orðlaus :)

Í dag er ég að vinna ef þið náðuð því ekki...svo er það bara nuddnámskeið í kvöld og alla helgina...fer að taka kúnna eftir helgi hahahaha....
Ætla að fá mér breggfast...hrökkkex með gúrku og nýjasta æðinu, ostarúllu með mango og jalapêno...ummm
Góða helgi

Prinsipp helgarinnar: Ekki tala í gemsann ykkar við akstur ökutækja!

5 Comments:

At 6:07 e.h., september 29, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Thu att pennavinkonu... Lattu mig vita hvort sendingin berst darling

Daman...

 
At 7:08 e.h., september 29, 2006, Blogger sunnasweet said...

OOO spændende...meget spændende :)

 
At 3:05 f.h., október 02, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Erum komnar með nýttt blogg.
Sirrý og Rósa María

 
At 9:02 f.h., október 03, 2006, Blogger Dilja said...

pant koma í nudd!!!! óboj hvað ég þarf á góðu nuddi að halda!!
sé þig svo á airwaves bebílööööv

 
At 4:49 e.h., október 03, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Tihi gledur mig ad heyra ad Barbie hafi komist alla leid :)

 

Skrifa ummæli

<< Home