Sunnu-dagur
vaknaði klukkan 04.30 í morgun alveg jeiii! vinna!!
Kem svo hérna og finn stóra dollu með brúnni KFC sósu á borðinu...ojjj ekki alveg það besta í minni æðislegu ógleði svona árla morguns...örugglega síðan í gærkveldi. Hvaða helvítis hálfviti getur ekki hent þessu í ruslið...dísess!!
Þoli ekki svona sóðaskap!
En oft þegar að dagurinn byrjar ekki sem best, verður hann náttúrulega bara betri og betri ...sem er gott :)
Núna líður mér vel.
Langar í Latte.
Er að horfa á misgóð tónlistamyndbönd með öðru auganu og klára þriðja og síðasta hluta Forðist Okkur eftir Hugleik Dagsson sem er óógeðslega fyndin.
Er einnig loksins byrjuð á bókinni A Revolutionary life, æviferil Che Guevara sem að pabbi lánaði mér fyrir löngu og ég hef ekki getað opnað vegna þess hve þykkkk hún er..sjííí
En það koma einstaka dagar þar sem að mér finnst ég geta allt og þá byrja ég á svona bollu bókum, sem að bíða í bókahillunni.
Annars hef ég verið að lesa slatta af bókum undanfarið....mætti hald að ég væri að vinna upp sumarprófamissinn en neiinei það væri steik!
Mæli með nokkrum:
Kite Runner. Kahled Houssini
Veronika desides to die. Paulo Coehlo
Kvenspæjarastofu bækurnar um Precious Ramotswe í Botsvana. Alexander McCall Smith
Beasts of no nation. Uzodimma Iwela
Á stefnuskránni er að klára doðrantinn um Che, Dining with terrorists, Meistarann og Margarítuna, Rokland og Draumalandið fyrir 1. sept.
Stíft prógramm æ nó.
Langar ótrúlega mikið að vera í bókaklúbb...hittast einu sinni í viku og ræða bækur og spekúlera...það væri svo gaman og heilbrigt eitthvað!
Veit að Ásdísi vinkonu dreymir um þetta líka en dáldið erfitt þar sem að hún er alltaf hreint að fíbblast í Frakklandi (hneyksl, kannski abbó)
En jæja þarf að vinna dáldið og njóta dagsins míns...
Have a good one ;)

6 Comments:
Góði dátinn Sveik er besta bók í heimi.
Some day, some beautiful day... þá stofnum við bókaklúbb Íslands :)
má ég vera með í bókarklúbb?? ég er desperate in search of discipline!
vei vei
hhaha auðvitað máttu vera með Dilla mín...allir vel þenkjandi menn munu fá inngöngu í bókaklúbb Íslands :)
er tilbúin hvenær sem er í bókaklúbb og ótrúlega spekúleríngar í kringum allt lesefni... mig langar, má ég?
var einmitt að klára meistarann og margarítuna...
ég elska bækur... er sona bókaperri!
ææi nei Hulda mín..þúrt alltof kreisí :)
hahaha djók!
Þetta stefnir í þrusu bókaklúbb...
Skrifa ummæli
<< Home