HallóHeima
Jájájá...sit hérna geispandi með rauðvínsglas og á eftir að gera næstum allt sem er á "to do before Tenerife" listanum mínum...en langar helst bara að sötra rauðvín og fara í pottinn og sofna svo vært.
En það yrði nú meiri hausverkurinn í morgunsárið...össs!
Undanfarnar tvær vikur hafa verið með afburðum skemmtilegar...Fabian kom frá París og létum við Guddy hann kynnast íslenskri náttúru, veðurfari og drykkju.
Það fór misvel í drenginn hahahaha....
Verslunarmannahelgin var eiginlega bara sukk út í gegn...ekki á útihátíð samt...bara svona HallóHeima þar sem að rjóminn af liðinu safnast saman.
Borðuðum samt fyrst grillað lamb heima hjá mamíblúú (foreldrahús Guðrúnar)
Það var yndinslegt!
Kíktum á spænskt ættarmót i Bláa Lóninu.
Ég hélt pizza&pottapartí.
Fór á GayPride ofcoz.
Sá Morrissey og dó næstum...var með standandi gæsahúð og væri helst til að láta marinera mig í Morrissey.
Sjííí!
Kveðjukaffi á Flösinni í bæjarfélaginu Garði þar sem að krúttahjónin Ragnheiður Ösp og Raggi eru að flytjast búferlum til USA á morgun.
Inn á milli kúrðum við og klipum hvort annað, mússímús!
Svo núna síðustu tvo daga hef ég verið pínu tóm og slöpp...alveg með leti og ljótuna á hreinu.
Eeeen á morgun er ég á leiðinni í sólina í viku og vona að þið gerið ekki allt brjálað á meðan.
Veriði menningarleg!
Kozzar & Knúz

1 Comments:
Öfund öfund öfund... nei, meina samgleðst þér! Ótrúlega góða ferð í sólina, sólin mín!
Skrifa ummæli
<< Home