diary of a mad black woman
margt hefur á daga mína drifið síðan síðast...
t.d. sá ég nokkur skemmtileg bönd spila á ReykjavíkTrópík...þar stóðu Ladytron og ESG uppúr. Vá!
Tekið dágóðar vinnutarnir.
Séð Roger Waters standa fyrir sínu. Sjóið var mjög svo magnað. Takk pabbi!
Fengið góð ráð er spáð var í bollann minn í Nornabúðinni.
Farið á hljómsveitaræfingu.
Djammað með Dj Guddy, og ekki séð hana síðan :(
Keypt mér æðislegan 17. júní bol í KVK, sem ég notaði svo ekki.
Það kemur annar.....
Ragnheiður Ösp og Raggi eru orðin hjón :)
Æðislegt!
Verið móðir/húsmóðir/vinnukona/þræll á meðan mamma mín dvaldist í Póllandi á leiðtoganámskeiði.
Yndislegt alveg hreint!
Ásdís og Benoit komu frá Frakklandi og hef ég borðað mjög góðan mat með þeim ;)
Kíkt í partí til Hebu og hitt þar fyrir fullt af fallegu fólki...
Sofið lítið og mikið...alltaf öfganna á milli hér á bæ.
Sagt þá snilldarsetningu "þú ert eins og tísk útúr klipptublaði" við Brynhildi eftir lokun KB...hressleikinn ávallt til staðar.
Ráfað á Klambratúni drullu skítug kl.11 á Sunnudagsmorgni og beðið eftir að e-r kæmi að ná í mig :) mahahaha....
Farið á Víkingahátíð og borðað svínarif.
plús allt þetta hversdagslega sem skiptir jú öllu....
Með sól í hjarta óska ég ykkur öllum góðrar helgar...keyriði varlega!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home