óþol og ommilettur
Ég er með algjört óþol gagnvart fólki sem er á móti innflytjendum, oftast af svo að segja engri ástæðu.
Bara plein heimska og þröngsýni!
Þetta fólk virðist ekki fatta það að innflytjendurnir eru ekki "vandamálið" heldur "enga stefnan" sem að við erum með í málum og aðlögun innflytjenda.
Ég bara get ekki skilið!!
Halló!!! Við erum öll innflytjendur ...kommon!
Ég hef lítinn sem engann tólerans í þessari umræðu.
Það er alveg ástæða fyrir því að ég hrífst af gáfumönnum einsog Eiríki Bergmann :)
Annars er ekki margt að frétta úr víkinni...ég hangi enn inni...keypti þó lyf fyrir 10 þús. kall í gær og vona að það hafi eitthvað að segja.
Ég á í fullu fangi við að pústa mig og gleypa töflur...finn mun.
Þetta er allt að koma...
Eldaði dýrindis ommilettubökurnar mínar í morgun fyrir mig og beztu mömmu í heimi....fylltar kjúklingi, salati og feta.
Lét ólívur hjá mömmu...hún elskar þær ...ég ekki.

7 Comments:
Já Dísin mín, alveg rétt hjá þér.Samfélagið verður bara fjölbreyttara og skemmtilegra, láttu þér batna mússy mín
Vonandi batnar þér sem fyrst elsku Sunna mín. Ég er alveg sammála þér með innflytjendur, mér finnst hræðinlegt að heyra þegar fólk er með fordóma gagnvart þeim.
Já MaríaRut...held að það væri ekki vitlaust...ættum kannski að elda saman þríeykið og skunda svo í karaókí :) muhahaha eða bara á dansiball.....
Ég verð í bandi við þig í vikunni...við tvær gætum kannski hist og farið í bíó....eða á grænan kost eða bara eitthvað.
Takk annars allir fyrir batnaðarkveðjurnar......er ákveðin í að verða ekki langveik...í vinnuna fer ég á morgun!!
oh æjæj, enn leiðinlegt með þetta ónæmisvesen! Ef lyfin virka ekki þá ættiru að tala við fólk eins og Ásdísi Rögnu grasalækni því ég veit að hún getur hjálpað þér fyrir miklu minni pening.
Knús í krús elskan mín og farðu vel með þig.
Uff ekki godar thessar veikindasogur thinar! Vona ad ther batni fljott og vel ur thessu...
Annars er eg sammala med innflytjendur. Thekki eina sem er med svona svart og hvitt skodanir; thetta folk getur bara verid heima hja ser, heimskt og vitlaust. Stundum verd eg pirrud en stundum hlae eg bara ad henni, thetta er eitthvad svo faranlegt. Lysir best fafraedi hennar ;)
Astarkvedja,
Asdis
P.S. Allir ad fa ser svona myspace? Er thetta malid i dag?
Asdis
astma og ofnæmislyfin virka vel takk Sirrý, mér finnst jurtaapótekið ekki það ódýrasta en hef nýtt mér það enda mikið verið að reyna að bæta náttúrulyfjum inn í staðinn fyrir þau kemísku...sumt virkar sumt ekki.
Já Ásdís ...vona svo innilega að ég sé búin með þennan veikindapakka...þarf bara að forðast reyk dýr og náttúruna...muhahaha nei ekki alveg en næstum því :)
En já myspace er "nýja" trendið í dag...fáðu þér!
Je t´embrasse trés fort...toujour
Skrifa ummæli
<< Home