Bloggedíbloggblogg
Jáá úrslitakveld Músíktilrauna er í kvöld í Loftkastalanum.
Hefði viljað fara og hlusta á nokkrur áhugaverð bönd þarna en er að vakna á ókristilegum tíma þessa dagana og læt það því ekki eftir mér.
En ég held með Le Poulet de Romance!
Þeir eru bezztir...
Annars var ég hlusta á nýtt lag með Benna Hemm Hemm og Hugleik...heitir ég kyssi augun þín eða eitthvað solleis...það var dáldið svalt!
Annars er ég að hlusta á Capone bræður og elska það.
Þeir fá mig alltaf til að hlægja dátt eða allavega brosa blítt :)
Mjáá og svo langar mig í nýja diskinn með Ghostigital...IN COD WE TRUST...einhver að gefa mér hann í afmælisgjöf.
Er nebbla hætt að kaupa!!
Verð sko 25 ára bráðum takk fyrir takk. Gaman að því!
Ég verð bara fallegri og skemmtilegri með aldrinum....að mínu mati ;)
Góða helgi elskurnar....fariði mátulega varlega...

5 Comments:
fallegri!
Sunna ég skal öskra frítt fyrir þig inn á geisladisk og gefa þér án endurgjalds. það er örugglega skemmtilegra en að hluta á vibbagóstdigital.skemmir eyrun í manni þetta gaul í honum einari.
muahahahhah
Guðrúnita senjorita
Guðrún muhahahaha...þú ert svo fyndin elskan...
Fæ nóg af öskrum frá þér...og er mjöög hrifinn af því.
En ég er haldin krónískri hrifningu af Einari Erni...allt síðan að ég hlustaði á hann vikulega flytja X- dómínós listann á x-inu :)fíla hann...hann er bara kúl steik!
Svo eru massa sætir gaurar í þessari hljómsveit...og hef ég heyrt að þessi diskur sé bara fjandi góður.... en hei þú þarft ekkert að vera að gefa mér hann í afmælisgjöf. En það er alltaf voða gaman að fá eitthvað sem maður vill :)
Hmmm buin ad taka ut mommubloggid!!! vonandi olli thad engum heimiliserjum...
Asdis
hehehe ákvað að vera skynsöm og koma í veg fyrir það....æææi vildi ekki særa neinn :)
Skrifa ummæli
<< Home