.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

13.3.06

veiksmeik

Róóóóleg helgi með mörgum ó-um.
Búin að hanga heima hjá mömmu með hósta frá helvíti.
Lærði náttúrulega ekki rassgat en gerði samt fullt sem að var á langa "to do" listanum mínum :)
Til dæmis horfði ég á nokkra dvd, tvo sem ég keypti í París um daginn, Greatest hits með The Cure og The Jewel In The Crown sem er óopinber heimildarmynd um Morrissey.
Elska Morrissey! Smiths eru schnilld!!
Hef alltaf fundið smá samnefnara milli hans og Bigga "í" Maus.
Veit ekki hvað það er því nú þekki ég þá hvoruga persónulega...
Kíkti líka á nokkra góða og gamla með Madonnu og svo hana Björk mína.
Gerði endalaust margar Sudoku þrautir...komin úr auðveldum og þægilegum yfir í erfiðar og kvikindislegar. Hættulega ávanabindandi.
Hlustaði nokkrum sinnum á diskinn Nolita með Keren Ann.
Er mjög mjög hrifin...finnst hann ívið betri en Not Going Anywhere.
Örugglega afþví að flest lögin á Nolita eru á frönsku...onei skemmir sko ekki fyrir.
La Disparition á ég svo eftir að hlusta á. Svo þarf ég að fara að ná mér í Lady & Bird..jájá ég veit, ekki búin að hlusta á hann. Bissí görl!!
Mæli með að þið farið á síðuna hennar www.kerenann.com og tékkið á söngnum...bara fallegt!
Lögin á Nolita sem að ég er að nauðga núna heita La Forme Et Le Fond og Midi Dans Le Salon De La Duchesse.

5 Comments:

At 10:30 e.h., mars 13, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Æi það getur verið svo gott að gera alls ekki það sem maður á ekki að gera stundum, alveg nauðsynlegt örðu hvoru.
Lára kLára

 
At 12:54 f.h., mars 14, 2006, Blogger sunnasweet said...

Já vá hvað Panodil Hot er mikill vibbi...lyktin er fín...frekar góð meira segja...össs svo kúgast mar svakalega þegar maður tekur fyrsta sopann af þessu lokkandi seyði.
Svo er ég búin að óverdósa á hóstamixtúruna og er núna komin í náttúrulegan heimatilbúin drykk búin til úr hvítlauk, engifer og sítrónu...enda líður mér ekki sem aðlaðandi konu :) hehe ein sem er búin að prufa allt.
Annars er ég alveg meira en til í CocoRosie. Hvort eigiði miða á tónleikana 16. maí eða þann 17?

 
At 1:26 e.h., mars 14, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Coco Rosie ad koma a klakann... En gaman ;)

Lattu ther batna elskan...

Asdis

 
At 1:04 f.h., mars 15, 2006, Blogger sunnasweet said...

Ég hélt að það væru tvennir því að það er auglýst á síðunni þeirra 16 og 17 ...humm weird?
En jú mig langar ógisslega...er reyndar að fara að sjá Joanna Newsom í Fríkirkjunni þann 18. maí en það er bara gaman...get ekki sleppt CocoRosie....ætla að tékka á miðastatus..verð í bandi við þig ;)

 
At 12:09 f.h., mars 16, 2006, Blogger sunnasweet said...

Já æðislegt! Shalimar er bara málið... tradition my friend tradition ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home