Uppgjör
Kæru vinir nær og fjær...gleðilegt nýtt ár!
Ég get ekki gert annál 2005 einsog svo margir af því að ég er með þvílíkt gullfiskaminni.
Man næstum ekki neitt lengur. Reyni en það gerist ekki margt.
Einna helst að það sé djamm, djamm og aftur djamm, tónleikar og flutningar...jú og heimsókn til Palla.
Gæti kíkt í dagbókina mína góðu og gert útdrátt en finnst það aðeins of yfirgripsmikið og sumt alltof persónell og einnig margt sem skiptir barasta ekki boffs máli.
En endilega kommentið um skemmtilegar stundir sem að þið munið eftir að við eyddum saman á árinu og ég verð súperglöð.
Ætla því bara að sleppa annálnum en í staðinn þakka öllum þeim sem ég átti stilltar, villtar og trylltar stundir með á nýliðnu ári æðislega vel fyrir þær og ennfremur þakka öllum vinum mínum góða og trausta vináttu....love you guys!!

4 Comments:
Gleðilegt nýtt ár elskan!
Já ég var einmitt að rifja það upp um daginn þegar að mér varð svo mikið hugsað til þín :) sakna þín krúsímús...
Mér finnst lang skemmtilegast að borða með þér og sofa hjá þér hihihi...
En hei þú verður drepinn með berum höndum ef að þessi mynd kemst í leitirnar...held hreinlega að ekki sé til ljótari mynd af mér í öllum heiminum! But consider yourself warned my love...
Það er eins hjá mér. Ég er með gullfiskaminni. En ég ætla samt að segja þér hvað mér fannst besta stundin með þér árinu, eða var það síðasta ár eða æj ég man ekki.
Allavegna, þá get ég ekki gleymt öllum ferðunum okkur æa vegamót. Manstu. við dressuðum okkur upp, settum á okkur gloss og trítluðum í dinner á vegamótum. Stundum vorum við allt kvöldið þar því þetta er bara besti staður ever. Stundum kom didda mæs með og stundum vorum við bara tvær saman á deiti. Þetta er æðisleg minning. Finnst þér það ekki :) Kv. Sirra
Sunna er nu rosaleg, hun er ad nota okkur oll... Segir mer lika ad thad se best ad sofa hja mer...
En allavega tha man eg ekki baun i bala, er buin ad hugsa og hugsa og er bara med svampheila...
Skrifa ummæli
<< Home