BónusFallið!
Ég féll heldur betur á föstudaginn. Úfff...
Þannig var að ég var í Keflavík hos familien og ég og mamma í einhverjum svaka gúddí fíling.
Förum í Bónus að versla inn fyrir helgina, laufabrauð, appelsín og soleis jólalegt.
Ég ætla ekkert að vera að gera stutta sögu langa, en þannig er að við förum með eina innkaupakerruna út að bílnum eftir innkaupin vegna þess að við erum með svo marga poka.
Ég er að skila kerrunni og fannst það afbragðs hugmynd að leika mér aðeins og renni mér á kerrunni. Æi þið vitið svona hlaupa og hanga á handriðinu.
Finnst svooo gaman að ég ákveð að fara hraðarr og hraðarrr....ómægod....kerran tekur tvist og ég fer í háaloft og er dágóðan tíma í frjálsu falli.
Skelli svo á hrjúfu malbikinu...ÁTS!
Hakan marin og hendurnar sárar og blóðugar, úlpan öll rifin og brún af drullu...uhuhu..mér leið í alvörunni talað eins og leikskólakrakka.
Sat með kjánahroll í bílnum alla leiðina heim...
Gaman að hegða sér einsog fíbbl en samt leiðinlegt að gera sig að fífli á meðan og meiða sig :)
Þetta hefði aldrei gerst með Hagkaupskerrurnar eða 10/11...léleg gæði í þessum Bónus-druslu-kerrum....
Það styttist í síðasta prófið og svo í blessuð jólin...víí!

7 Comments:
SNILLD! Hefdi viljad sja thetta ;) Samt leidinlegt ad thu hafir meitt thig... En samt fyndid! hehehe
Fyrirgefðu en HA HA HA, je minn eini hvað þetta hefur verið fyndið Sunna mín, þú ert algjör snillingur, en snillingur sem mér þykir ofsalega vænt um.
Arg - ég sé þetta svo fyrir mér.
Hahahah sé þetta alveg fyrir mér...ó mæ god...en vonandi er hakan og sárin búin að jafna sig, ekki gaman að vera öll út í sárum í jólakjólnum :s
Muna svo bara að renna sér á 10/11 og Hagkaupskerrum næst ;)
Þetta er svona skemmtilegt eftirá atvik!
Enn önnur sagan til að segja frá, hvort sem það er í saumó eða skólanum...
Er ekkert svo skarmbúleruð...meika alveg jólin.
Spurnign um hösslið samt...það reddast vonandi samt svo að mar fari nú ekki í jólaköttinn :)
Hvað hefðir þú fengið fyrir fallið 9 eða 9,5 þú er svo mikill snillingur dúllan mín. Hlakka til að sjá þig í saumó.
Já kenndu kerrunni um:)
Skrifa ummæli
<< Home