.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

14.3.06

Æði

Þessa dagana er ég með æði fyrir að sjóða smá blómkál og Spergilkál og búa til mína góðu gráðostasósu. Já eða piparosta....
Einnig er ég með æði fyrir strengjabaunum...ummm með rifnum osti eða fetaosti :)
Er með svo mikið æði fyrir Sudoku þrautum að mig dreymdi í nótt að ég og Guðrún værum taflmenn í sudokuþraut mahaha alveg stærðfræðiheilinn sjálfur....NB þetta er sudokudraumur númer tvo!
Ég er með æði fyrir Läkerol með cactus bragði.
Ég er með smá æði fyrir bókinni hans Þórhalls Heimissonar, Hin mörgu andlit trúarbragðanna, sem ég er loksins að komast yfir síðan ég byrjaði á henni um jól.
Kannski margt sem að ég vissi áður en samhengið er einstaklega gott og hann skrifar hana af mesta hlutleysi þrátt fyrir að vera maður þjóðkirkjunnar.
Ég er með æði fyrir Johnny Cash...hef alltaf fílað hann en núna er ég gersamlega dolfallin.
Sá myndina Walk the line og hún var virkilega góð.
Allavega er ég í bullandi sveitagír þessa dagana...hehe eða ekki.
Algjört æði fyrir Ásmundi Sveinssyni heitnum. Magnaður listamaður. Elska Ásmundarsafn!
Æðinslegur dagur með n-i
love to ya all

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home