Sunna með sólarexemið
Já, fríið með fjölskyldunni á Tenerife var ekki ein sólarsæla.
Eftir tvo daga var SunnaSól komin með massíft sólarexem og það klæaði svo mikið.
Hitinn og hið skemmtilega exem varð til þess að ég hegðaði mér einsog smákrakki. Geðveikt pirruð og einstrengisleg :) jeeii!
Ég flagnaði svo mikið sumstaðar á líkamanum að ég var farin að halda að ég myndi ekki líta glaðan dag aftur, en smá aftersönn og mikil olía lagaði meiddið.
Ég sem ætlaði að verða kaffibrún og sæt.
ÆÆi verð bara að sætta mig við það að ég er svertingi með hvíta húð :)
Annars var voða næs að gera ekki neitt af viti í viku...nema lesa fullt af bókum.
Dagurinn var yfirleitt að byrja um hálfníu með morgunverði á svölunum...
Klukkan ellefu var sundleikfimi, stjórnað af algerum kroppaling ;)
Svo var legið aðeins eða lesið í skugga.
Síestunni var síðan oftast eytt í loftkælingunni.
Rölt í centró commersíal til að kaupa vatn og snakk.
Út að borða á kvöldin..
Sangría og rauðvín á svölunum á kvöldin...
Lífið verður rútína...
Verslaði nú svo til ekki neitt...fjögur skópör, einhverja boli og sólgleraugu.
Sá stjörnuhrap og óskaði mér ...víííí! Langt síðan síðast.
Fyrir utan húðvandamálin var þetta indælis vika og gott að breyta um umhverfi...
Elska fjölskylduna mína alla leiðina til tunglsins, kringum allar stjörnurnar og alla leiðina tilbaka ******
Er fersk og til í allt núna

2 Comments:
Til í allt segirðu....
Kóngurinn
aha aha aha...með þér ó já ;)
Skrifa ummæli
<< Home