.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

28.10.06

ritgerð

Þetta er orðin ágæt pása...gott vetrarfrí! :)

Íslensku hljóðbylgjurnar voru hin ágætasta skemmtun þetta árið...kíkti út öll kvöldin (reyndar ekki Sunnudagskvöldið, fór á Mýrina í þynnkunni)
Missti reyndar af heil mikilli tónlistarveislu á Gauknum það kveldið en þreytan og tussulegheitin hefðu ekki höndlað andrúmsloftið þar.
Var svona aðallega staðsett í Hafnarhúsinu enda laahang besta loftið og plássið.
Gaukur á Stöng (finnst nafnið alltaf jafn gúffílegt) var alveg offf í aðstöðulegum skilningi talað.
Glatað tónleikapláss!....þetta er orðið það stórt festival að það á bara ekki að bjóða upp á svona...en það er náttúrulega ekkert stærra og betra í boði..ekki er Kaffi Amsterdam stærri! nú eða Palace.
En þeir á Gauknum fá líka stóran mínus fyrir að selja bara bjór og ópal...ekkert léttvín!?
Hélt mér sko þurrari en ráð var gert fyrir :) mahahaha...
Dáldið fyndið að hugsa til þess að hafa ekki rautt og hvítt á boðstólum hahahaha næ því bara ekki hahahaha og enn meiri hlátur og hneyksl bwahahaha....

Ups and Downs:
We are Scientists voru ágætir á miðvikudagskvöld...meikaði ekki að hinkra eftir Diktu...eins mikið og mig langaði.
Rölti með Sigurgeir yfir á Pravda þar sem að var alltof mikil djamm stemming í gangi fyrir mig.
Gaman en ég var að fara að vinna eftir nokkra tíma svooo No No for me.

Á fimmtudagskvöldið fórum við Guddy og Mæsa til að byrja með á Moshi Moshi kvöldið í Hafnarhúsinu...þar spiluðu Mates of States ágætis poppp...okkur fannst lögin öll keimlík en lokalagið var grúví að mínu mati.
Hot Club De Paris voru skemmtilegir á sviði en þó ekki eins góðir og ég var búin að ákveða :) (Mission Diary) fyrir þá sem að fatta.
Tilly and the Wall voru æðisleg....steppið kom geggjaðslega á óvart og flest lögin bara virkilega skemmtileg...stelpurnar voða sætar...tók ekki einu sinni eftir strákunum hahaha..
Þarna ákváðum við svo að beila yfir á Gaukinn.
Eberg var ótrúlega sjarmerandi og sætur á sviðinu.
Bætti upp sjóið með útlitinu og þessu brosi ummm... heh!
Breska gellan sem voffaði með honum var dáldið skemmtileg líka...hún er með myspace einsog allir sem að eru hipp og kúl ...man ekki slóðina í augnablikinu.
Datarock voru ógeðslega fyndnir...útlitslega séð og tónlistarlega...hitinn og svitinn bar mig þó yfirliði þarna og færði ég mig aftast og missti þ.a.l. af smá stemmingu...en ekki vildi ég líða útaf eins og feitt sveitt svín með Margeir og Kasper fyrir framan mig...nó vei!
Þeim tókst endanlega að heilla mig með því að enda sjóið á titillagi myndarinnar Dirty Dansing...bahhh! var að þeirra sögn þeirra síðasta gigg...
Fíla svona elektró popp hippstera.
The Whitest Boy Alive voru þéttir...bjóst ekki við öðru...m.a. skipað Erlend Öye (Kings of Convenience)...dáldill svona St. Germain fílingur...

Föstudagskvöldið var tekið snemma á Tapas barnum í mat og drykk.
Fæ ekki leið á þessum stað.
Fæ náttúrulega ekki leið á mat né drykkkkkk...neee
Sáum síðasta lagið með Benna Hemm Hemm......hef séð þá svo ég grét það ekki. Alltaf góðir!
Kanadíska sveitin Islands spilaði þétt og gott popprokk.
Apparat Organ Quartet voru roosalegir.
Fíla þessa hljómsveit í tætlur og hef gert síðan ég sá þá fyrst.
Hefði viljað sjá þá spila leeeengur.
Jakobínarína voru hressir og skemmtilegir...elska "danshoppin" hans Gunna söngvara. OOO svo miklir músarindlar eitthvað..
The Go! Team voru hress á sviði en ollu mér miklum vonbrigðum.
Hefðum átt að beila fyrr en vildum heyra ákveðið lag sem kom auðvitað síðast....þá var strollað á Kaffibarinn.
Dj Kasper Björke átti að vera spila en ég sá hann aldrei, sá bara Nuno eða hvað sem hann heitir...en tónlistin var drullu góð...
Sunna var bara ekki í stuði með guði.
Þó að Björk mín væri á fóninum....
Sá draumaprinsinn sem var svo ekki draumaprinsinn eftir allt...hahhah been there before!
Vildi að við hefðum farið að sjá Shadow Parade og Trost í staðinn fyrir KB....en er ekkert að stressa mig á því. Past is Past.

Beilaði á Bláa Lóns partíinu hans Margeirs.
Var að passa litla prinsinn minn hann Egil Darra...það var sko Grande Laugardagur hjá systkinunum...brunch á Kaffitár...ís í Kolaportinu...gefið öndunum brauð í sól og blíðu...smá búðarbrölt og rölt í bænum...playmo í Leikbæ...enduðum svo á að borða í góðra vina hópi á Ítalíu.
Jáá þessi litli snúður snælduson mun alltaf eiga eina auka mömmu...enda segir hann oft Mamma Sunna sem að mér þykir svo vænt um að ég fæ sting í magann.

Hápunktur hátíðarinnar var laugardagskvöldið...þar byrjuðum við sem endranær í Hafnarhúsinu...Sáum í rassinn á Pétri Ben sem er flottur.
Biggi (Maus,Bigital) var góður...ég fíla röddina hans og fannst hann afslappaður og notalegur á sviði.
Leaves hef ég ekki séð síðan á útgáfutónleikunum í fyrra á Nasa þar sem að þeir voru æði...voru betri ef eitthvað er núna.
The Cribs voru rúmlega okei.
Kaiser Chiefs stóðust væntingar sem að voru svona semí.
Kláruðum þá ekki til þess að skottast yfir á Nasa og ná Brazilian Girls sem að voru vangefið góð. Sáum ekki eftir því.
Þarna komst ég í djammstuð...einnig búin að drekka nokkur rauðvínsglös...
Hermigervill var ágætur...betri í fyrra fannst mér.
Dr. Mister and Mr. Handsome eru stuuuð-boltar, í bókstaflegri merkingu!
Hahaha...
Ég held að fokkings troðningurinn fyrir utan Kaffibarinn hafi orðið til þess að nokkrar háræðar sprunga útum allt á mér...ummm næs!
Aha þetta var bara ekkert sneeðugt...vildi bara ekki fara neitt annað og alls ekki ein heim...vildi hitta einhvern..hözzla ;) heh!
Years of rejections is a lifestyle! (SATC)
Vil þakka Mr. Destiny fyrir fína dagskrá og betra skipulag en í fyrra...er södd og sæl...

úúú kúl...getiði hvaða myndband er á Sirkus núna???
Sá sem að getur rétt fær að sofa hjá mér :)

Hint: Minnir mig á reif-herbergið á árshátíðinni í Holtaskóla....manstu Ragnheiður..og líka á G. Teits og Prikið...

7 Comments:

At 8:39 e.h., október 29, 2006, Blogger sunnasweet said...

Ég ætla biðja lesendur um að kommenta undir nafni, eða sleppa því.
Kveðja ritskoðunarnefnd

 
At 11:44 e.h., október 29, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Geri ráð fyrir að þetta hafi verið out of space með Prodigy :-) úff ég varð nú bara þreyt að lesa þessa ritgerð, fékk verki í fætur í flashback :-)
Knúsen únd kissen,
Guddy not longer living in the block muahhahahha.

 
At 12:15 f.h., október 30, 2006, Blogger sunnasweet said...

JÁÁ! RÉTT!! Þú vannst!!!
Átt inni hjá mér dráttt..hahaha
Ert nú tíður svefngestur svo við tökum á því næst ;)
Já þetta er alger langavitleysa...varð bara að koma þessu frá mér...
I heart YOU

 
At 6:20 e.h., október 30, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Mahahha hefurdu ruglast og farið inn á þessa sidu: www.sunnadis.blogpsot.com

Love you!

Ásdís

 
At 5:12 e.h., október 31, 2006, Blogger sunnasweet said...

hahahaha bible studies...it´s a sign :)

 
At 5:25 e.h., nóvember 01, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

ég blogga ekkert afþví að ég er lasin og dottin inní sjónvarpið...hefði aldrei trúað að Prison Break væri svona spennandi...sjííí!
Sunna Dís

 
At 10:03 f.h., nóvember 06, 2006, Blogger sunnasweet said...

Já skil það vel...því það gat nú eiginlega verið annað hvort lagið...váá hvað þessi Prodigy lög minna mig á hin ýmsu tímabil...þá sérstaklega rave herbergið með þér og svo Boston :)

 

Skrifa ummæli

<< Home