Pétur Gautur
Stórfjölskyldan hópaðist saman í þjóðleikhúsið á föstudaginn eftir léttan dinner á Tapas.
Sáum sýninguna Pétur Gautur eftir danska leikrita- og ljóðaskáldið Henrik Ibsen.
Uppsetningin var vægast sagt stórkostleg.
Frábær leikur og töff leikmynd.
Ég hefði hrópað BRAVÓ! í lok leiks ef ég hefði ekki verið með kökk í hálsinum og tárvot augu.
Verðið að sjá þetta verk!
Sátum á B5 og sötruðum rauðvín (Beronia) eftir menninguna.
Umræður voru um allt frá lömpum í Habitat til fjölskyldukrísa.
Á laugardaginn fór ég með Mrs. Royal á Vegamót í Luxury Brunch.
Við fórum í svaka jólagír í hellidembunni...skottuðumst um bæinn með risastóra regnhlíf og versluðum "nauðsynjar".
Palli minn bauð mér,Georg og Arnaud í mat...það var að vanda voða ljúffengt.
Vegna yfirvofandi stormviðvörunar fór ég suður fyrr en vildi...gaman hefði verið að sitja að sulli frameftir með þessum fallegu og skemmtilegu fýrum en ég ákvað að vinna Sunnu-daginn. Sé ekkkert eftir því.
Sá Borat í bíó...mæli með henni sem vídjómynd......kolsvartur húmor :)
Mæli með myndinni Adams Æbler.
Hún er í senn fyndin og sorgleg.
Hún er líka dönsk.
Mads Mikkelsen fer með aðalhlutverkið og er meget sjarmerende ;)
Svo vill ég benda ríkistjórninni á að minnka landsframleiðsluna ef að þeir hafa ekki áhuga á erlendu vinnuafli.
Já og segja EES-samningnum upp (haha je ræt!)
Annars stefni ég á að elda kjötsúpu annað kvöld.
Þetta var helst, svona á þriðjudagsmorgni, þann 7. nóvember.

5 Comments:
Hehehe mer heyrist allt vera a sudupunkti a isklakalandi vegna "innflytjendavandamala"... So funny these icelandic people...
Asdis
ó jesss....svakalegt!
ohh leikhús. Mig langar svo oft í leikhús. Ég skil ekki af hverju ég fer ekki, ég hef átt 4 miða í bæði leikhúsin í 3 ár en ekki enn farið.
Sunna ef þér langar með mér í leikhús þá á ég miða! Dragðu mig með þér! Ég skal meira segja bjóða þér!
Kv.Sirrý- langar í leikhús!
ómægod...jááá Sirrý ég er sko til..fullt af spennandi sýningum í gangi...t.d. Amadeus í Borgó (með Hilmi) og Sitji Guðs Englar í þjóðleikhúsinu plús margt fleira...
Skellum okkur bara sem fyrst ;)
Heyrðu sæta mín....vika og no news! Eigum við ekki að fara að ákevða dagsetningu fyrir Voxið í desember?
Kveðja,
Kristín María at www.birgisdottir.com
Skrifa ummæli
<< Home