.comment-link {margin-left:.6em;}

Sunna Sweet

23.12.06

Hvaða leið eigum við að fara?

Í ævintýrinu um Lísu í Undralandi kemur hún að gatnamótum og spyr kattarkvikindi eitt (sorrí Gudda :) "Getur þú nokkuð verið svo vinsamlegur að segja mér hvaða leið ég á að fara?"

Kötturinn svaraði um hæl; "Já, það fer nú heilmikið eftir því hvert þú vilt fara."
Lísa svaraði "Æi, það skiptir ekki svo miklu máli hvert ég fer!"
Þá svaraði kötturinn sposkur; "Nú, þá skiptir heldur ekki máli hvaða leið þú velur!"

Lífið er fullt af áskorunum og viðfangsefnum, til þess að ná árangri og lífsfyllingu verðum við að gera það upp við okkur hvert við viljum fara. Of oft gerum við það án þess að leggja nokkurt mat á hvert við stefnum eða hvað við viljum forðast.
Hamingjan er ekki við næstu gatnamót og við þurfum ekki að fara langar leiðir til að finna hana. Hún er við hlið þér, og felst í þeirri ákvörðun að njóta hennar.

Framtíðin er nokkuð sem að maður nær með 60 mínútna hraða á klukkustund, sama hversu gamall þú ert. EKKI einungis dreyma um framtíðina, hún gefur þér ekki hið liðna aftur, hún BYRJAR í næsta skrefi. blebleble...

Kæru vinir og vandamenn, takk fyrir góðar stundir á árinu sem er að líða, og með von um að þær verði enn fleiri á nýju ári óska ég ykkur mikillar gleði og velfarnaðar í leik og starfi....
Gleðilega hátíð og ÁST til ykkar allra, þá sérstaklega þeirra sem ekki hafa mikið af henni og líður illa af einhverjum ástæðum.....
Kiss Kiss Knús & Kram, kveðja Nóa-Sunna

5 Comments:

At 11:25 f.h., desember 23, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Æðislegur pistill elsku Sunna mín! Þetta er svo satt...

Ég óska þér líka gleðilegra jóla og vil þakka þér fyrir að vera yndislegasta vinkona sem hægt er að óska sér....

Ásdís

 
At 3:55 e.h., desember 23, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Falleg jólahugvekja Dísin mín, maður á bara að fylgja hjartanu í einu og öllu og njóta líðandi stundar.Jólaknús Guðrún

 
At 2:58 f.h., desember 26, 2006, Blogger sunnasweet said...

takk elskurnar .... þið tvær eruð mínar uppáhalds :)

 
At 1:40 e.h., desember 29, 2006, Anonymous Nafnlaus said...

Hvað varð um jólakortið sem þú ætlaðir að senda mér ?

Sigurgeir Þór

 
At 7:14 f.h., janúar 01, 2007, Blogger sunnasweet said...

Ég sendi engin jólakort í ár...bara nýárskort :) færð solleis í pósti góði

 

Skrifa ummæli

<< Home