jól jól jól
Já það er óhætt að segja að það séu komin smá jólajól í mig.
Allur snjórinn sem að kom í kjölfar jólaboðsins síðasta laugardagskvöld :)
Bæjon skinkan sem að mamma sauð í kvöld.
Jólabókaflóðið...mandarínurnar.
Piparkökur með kaldri mjólk.
Ég er líka búin að kaupa eitthvað af jólapökkunum, þ.á.m. pakka handa mér.
Hef haft þann sið í nokkur ár að gefa sjálfri mér bók eða spil hver jól...svo gaman að safna góðum bókum og skemmtilegum spilum.
Í ár verður heldur betur breyting á jólagjöfinni frá mér til mín.
Skellti mér bara á ferð til New York í mars...aha góður fyrirvari og þið sem þekkið mig þá get ég verið þessi ofur spennta týpa.
Ætla loksins að heimsækja yndislega vini mína sem að þar búa.
Söfnunin hefst þegar í stað svo hægt verði að borða vel, drekka meira og versla eitthvað af ilmvötnum og hársnyrtivörum :)
Gleðileg jól

5 Comments:
Oh það verður æði í NY,eins gott að byrja að safna strax aðeins of auðvelt að eyða peningum í NY :-) kveðja frá jólasveininum
Ji en geggjað hjá þér að skella þér bara til NY!!! Þetta verður æði :)
Annars er ég ekki alveg komin í jafnmikið jólaskap og þú. Það er reyndar farið að tínast jólaskraut í búðirnar og svona hérna en snjóinn vantar :( Rétt farið að snjóa í hæstu tindum en þetta kemur allt með kalda vatninu... Minna en mánuður í Íslandsför! Jibbý!
Love,
Ásdís
Jáá NY verður Kreisí!
En ég held að snjórinn, sem er reyndar að mestu farinn núna eigi stóran þátt í jólaskapinu...jú og allt hitt :)
en já hlakka svo til að sjá þig...næ að senda þér eitt bréf eða svo ...
vá-vá-vá! Sunna þú ert alltaf flott á því! :-)
Má ég koma með ??????
:-)
jájájá fjölmennum til NY stelpur :)
Takk Reigen...mjöög freistandi boð :)
Skrifa ummæli
<< Home